Hjálp
Einhverjar spurningar um síðuna?Spá hvernig þú getur keypt inneign?
Smelltu hér til að fá aðstoð
New in Town
Kona úr viðskiptaheiminum frá Miami reynir að aðlaga lífi sínu að smábæjarlífinu í Minnesota.
Fair Game
Joe Wilson er sendur til Níger til að kanna sögusagnir um að Írakar hafi keypt þaðan úran til kjarnorkuvopnagerðar. Hann skrifar hann grein um málið í New York Times en skömmu síðar virðast valdamiklir aðilar hefna sín á Joe með því að gera kunnugt að Valerie, konan hans, sé í raun CIA-fulltrúi og í kjölfarið fer af stað mikil rógsherferð gegn þeim hjónunum.
Regína
Regína er ósköp venjuleg 10 ára stelpa sem býr með móður sinni í Reykjavík. Dag einn uppgötvar hún að hún getur látið hluti gerast með því einu að syngja um þá og, ásamt Pétri vini hennar, hrindir af stað áætlun sem varðar framtíð þeirra og foreldra þeirra.
Law Abiding Citizen
Afburðagreindur maður ákveður að taka málin í sínar eigin hendur eftir að einn mannanna sem myrtu fjölskyldu hans er sleppt úr fangelsi. Hann ákveður að hefna sín, ekki aðeins á morðingjanum heldur lögmanninum sínum sem og öllum sem að málinu komu.
Red Cliff
Goðsagnakenndi Hong Kong spennumyndaleikstjórinn John Woo og leikarinn Tony Leung leiða hér saman hesta sína í fyrsta sinn síðan þeir gerðu Hard Boiled árið 1992. Myndin Red Cliff er sögulegt drama sem fjallar um bardaga árið 208 sem markaði endalok Han-veldisins.
A Little Princess
Ung stúlka er send á heimavistunarskóla þar sem hún er látin vinna þjónustustörf þegar faðir hennar hverfur og er talinn hafa dáið.
Happy Feet
Lítil mörgæs fæðist sem getur ekki sungið en Keisaramörgæsir finna sálufélaga sína með því að syngja. Mörgæsin litla getur þó steppdansað eftir hjartans lyst og reynir að nýta sér það í staðinn.
Love Happens
Ekkill sem skrifar bók um hvernig er best að höndla lát maka síns, sem verður svo að vinsælustu bókinni á markaðinum, verður ástfanginn af vinnukonu á hóteli þar sem hann heldur fyrirlestur. Hann kemst svo að því seinna að hann er alls ekki kominn yfir lát konu sinnar.
Constantine
Sagan er byggð á DC/Vertigo teiknimyndablaðinu Hellblazer. Myndin segir frá John Constantine sem er lögreglumaður með yfirnáttúrulega hæfileika og hefur í orðsins fyllstu merkingu farið til helvítis og til baka.
Batman Begins
Sagan af því hvernig Bruce Wayne varð það sem honum var ætlað að verða: Batman.
Órói
Órói er mynd um unglinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í heimi hinna fullorðnu. Myndin er byggð á bókum Ingibjargar Reynisdóttur "Strákarnir með strípurnar" og "Rótleysi, rokk og rómantík" sem hafa notið mikilla vinsælda hér á landi. Handritið er skrifað af Ingibjörgu Reynisdóttur og Baldvin Z.
Green Lantern
Flugmaður sem flýgur tilraunaþotum fær óvænt í hendurnar grænan hring sem felur honum gríðarlega ofurkrafta. Hann fær einnig inngöngu í alheimssérsveit sem hefur það hlutverk að halda uppi friði í heimnum.
Final Destination 5
Fólk sem lifði af slys þar sem brú hrundi kemst að því að það er engin leið til að svíkjast undan dauðanum.
Red Cliff
Goðsagnakenndi Hong Kong spennumyndaleikstjórinn John Woo og leikarinn Tony Leung leiða hér saman hesta sína í fyrsta sinn síðan þeir gerðu Hard Boiled árið 1992. Myndin Red Cliff er sögulegt drama sem fjallar um bardaga árið 208 sem markaði endalok Han-veldisins.
Fair Game
Joe Wilson er sendur til Níger til að kanna sögusagnir um að Írakar hafi keypt þaðan úran til kjarnorkuvopnagerðar. Hann skrifar hann grein um málið í New York Times en skömmu síðar virðast valdamiklir aðilar hefna sín á Joe með því að gera kunnugt að Valerie, konan hans, sé í raun CIA-fulltrúi og í kjölfarið fer af stað mikil rógsherferð gegn þeim hjónunum.
Crazy, Stupid, Love.
Líf manns á miðjum aldri breytist skyndilega þegar að eiginkona hans ákveður að fara fram á skilnað. Hann reynir að enduruppgötva sinn innri karlmann með aðstoð frá Jacob vin hans sem hann kynntist á barnum og ætlar að kenna honum að nálgast konur.
Horrible Bosses
Þrír vinir eiga það sameiginlegt að yfirmenn þeirra standa í vegi fyrir þeim í hamingju og í lífinu og ákveða þeir því að hjálpa hvor öðrum að myrða þá.
The Beaver
Walter Black er yfirmaður í leikfangafyrirtæki sem reynir að svipta sig lífi vegna geðbresta en finnur síðan gamla og skítuga bjórabrúðu í ruslagámi og notar hana til að hafa samskipti við fólk. Konan hans er hinsvegar allt annað en kát þegar brúðan er jafnvel farin að fylgja honum upp í rúm.


Fylgstu með okkur á Facebook
Við erum líka á Twitter!